
Ciao!
Við Maggi mættum til Mílanó 14. september eftir gott ferðalag, engin yfirvikt og ekkert ves hehe. Okkur til mikillar ánægju fengum við íbúðina strax og með rafmagni! ...en það var ekkert gas og ekkert heitt vatn, svo eftir að við vorum búin að troða í okkur Da Willy pizzu beið okkar ísköld sturta fyrir svefninn úfff
Næstu daga fór allt á fullt... íbúðin var þrifin hátt og lágt, við komum okkur fyrir, redduðum bankareikning, sóttum um netið... heita vatnið og gasið klikkaði eitthvað en var væntanlegt þegar við kæmum til baka frá Spáni.
23. til 30. september, Spánn! Sól og blíða í rúma 2 daga og þá var stöndin klárlega málið. Pabbi hans Magga hélt upp á 60 ára afmælisdaginn sinn þann 25. september og heppnaðist dagurinn rosalega vel. Hina dagana var ekki mikið um sól... þrumur og eldingar og ég held að ég hafi sjaldan ef aldrei séð jafn mikla rigningu! En við létum það ekki á okkur fá og áttum góða stund saman... sumum tókst þó að ná meiri lit en öðrum hehe
Þegar við komum svo heim fengum loksins heitt vatn og gas... en ætli það sé ekki kominn tími á að sýna ykkur íbúðina??
Hér búum við í krúttulegri íbúð á fyrstu hæð í næstu götu við skólann minn og svona 30 mín frá skólanum hans Magga... Gangið í bæinn!
Eins og er sitjum við límd við tölvurnar enda nýkomin með netið hahaha. Maggi er farinn að blogga á fullu svo ef það er ekkert að gerast hér endilega kíkið á síðuna hans.
Takk fyrir innlitið...
Ciao!
Mamma og Rebekka koma í kvöld, síðasta prófið er í fyrramálið og ég er að fara kíkja á samninga fyrir íbúð næsta vetur núna á eftir. Já mikið rétt ég er búin að finna íbúð fyrir næsta vetur!! Svo við erum bara í nokkuð góðum málum þegar við komum út í september, en þeir sem vissu ekki af því nú þegar þá er hann Maggi minn að koma út með mér og taka skiptinám hérna úti!
En íbúðin er voða fín. Hún er eiginlega við hliðina á skólanum mínum, mjög stutt í samgöngur svo Maggi komist nú í skólann hehe... Eitt svefniherbergi, stofa og eldhús í sama rými, baðherbergi með nýrri sturtu, húsögn, þvottavél og ef ég skildi konuna rétt og hún mig þá er netsamband. En leigusalinn er ítölsk kona svo nú reynir aldeilis á ítölskuna úff...
En jæja ætla að hlaupa út og hitta hana til að fara yfir samningana, vona að það gangi allt upp hehe...
Ciao!
Hún var samt frekar óheppin með ferðina út, en hún flaug með Iceland Express sem seinkaði fluginu hennar um 9 tíma daginn fyrir brottför svo hún missti þ.a.l. af tengifluginu sínu og Express fríuðu sig undan allri ábyrgð og án þess að biðjast velvirðingar sögðu henni að googla bara hótel í London... pff glatað! Hún breytti flugmiðanum frá London til Milano sem kostaði slatta, pantaði hótel og lagði svo af stað. Þegar hún svo kom út á Leifstöð og búin að tékka sig inn fréttir hún að það væri meiri seinkun... 2 klst. í viðbót og dömurnar sem tékkuðu hana inn vissu af seinkuninni fyrir löngu og voru ekkert að hafa fyrir því að láta hana vita! Erða nú þjónusta, segi ekki annað pff!
En hún komst til mín á endanum dúllan og hér er kemur ferðasagan í stuttu máli:
Við byrjuðum eiginlega ferðina hennar á Da Willys sem er jú einn besti pizzastaðurinn að okkur finnst og Hrefna... jú ég held að hún sé bara nokkuð sammála okkur hehe..
Daginn eftir fórum við í menningarferð, kíktum á Duomo og skoðuðum kirkjuna, tókum okkur ís-pásu, kíktum í nokkrar búðir og fórum á kaffihús.
Næsta dag fórum við og kvöddum hana Emeli vinkonu mína og Olle kærastann hennar, en þau voru að fara heim og koma ekki aftur :( Um kvöldið fórum við á aperetivo og kvöddum fleira fólk sem var á heimleið.
Vöknuðum í miklum hita daginn eftir og röltum í garðinn þar sem við komum okkur vel fyrir undir tré í skugga og fórum í smá picnic. Seinni partinn var svo komið að því að skoða íbúðir. Á leiðinni í íbúð nr tvö var okkur litið á hitamæli sem við löbbuðum framhjá og ég tek framm að klukkan var rúmlega fimm að ganga hálf sex og á mælinum stóð 40 gráður!!! Úff ekki skrítið að við vorum að farast úr hita.
Íbúðarskoðunin gekk bara ágætlega og ég tala nú ekki um þar sem hún fór framm á ítölsku, vona bara að ég hafi skilið allt rétt sem mér var sagt hahaha...
Hæ hó og jibbí jey... það komu ský! Ferðinni að vatninu með íslendingunum var frestað vegna veðurs og við Hrefna og Elísabet fórum á California Bakery í 17. júní kaffi. Á meðan við vorum að borða kom þessi helli demba og vá við vorum heppnar að sitja inni. Þegar stytti upp fórum við og náðum í regnhlíf og kíktum í bæinn... búðarrölt í húsgagna og gosabúðir... og já síminn hringir og Sigrún var mætt til Mílanó í surprize ferð með Arthúri kærasta sínum! Nú vantaði bara Siggu til að allar skvísurnar væru samankomnar hehe...
Um kvöldið fórum við svo að borða með þeim skötuhjúum ásamt Gullu og hennar kæró og vinafólki þeirra. Eftir matinn tóku þau lestina til Bergamo og við Hrefna fórum og hittum krakkana á Mom´s og skelltum okkur svo á djammið! Mikið stuð og mikið gaman hehe...
Vöknuðum snemma daginn eftir og tilraun 2 gerð til að fara að vatninu. Veðrið var gott svo við drifum okkur allar af stað, ég, Hrefna, Elísabet og Sandra. Þegar við mættum á staðinn ákváðum við að fara í sunlaugina þar sem það var ótrúlega heitt og við hefðum bara bráðnað við vatnsbakkann, en það er bannað að fara útí vatnið. Við borguðum inn, fengum þessar huggulegu sundhettur og stungum okkur í ÍSkalda laugina... vá hvað það var næs. Hrefna mín tók smá lit eftir daginn, RAUÐANN lit og er búin að bera á sig AloaVera kælikrem eins og henni sé borgað fyrir það.
Í gær tókum við því bara rólega, fórum á kaffihús, röltum smá um Navigli... og nú er skvísan farin.
Á fimmtudeginum 18. júní átti svo hann pabbi minn afmæli og auðvitað er einn pakki hér handa honum hehe... Til hamingju pabbi minn!
Ætli maður fari ekki að læra núna, eitt próf eftir!
Ciao!
Svo breyttist líka profile myndin smá hehe...
Hvað finnst ykkur... betra eða verra?
Afmælisdagurinn var rosalega fínn! Byrjaði á því að fara í próf sem gekk ekkert svo allt of vel og var ég nokkuð viss um að ég væri bara fallin. Eftir prófið fórum við Emeli og fengum okkur hádegismat á California Bakery nammm... og svo kom ég við í búðinni, keypti í eina köku og fór heim að baka.
Kata vinkona hennar Söndru lenti seinnipartinn og Sandra skvísí skrapp út á flugvöll til að taka á móti henni. Þegar þær komu heim var ég á fullu að baka... þær fóru inn í herbergi og Kata fór að taka upp úr töskunni. Allt í einu er kallað á mig og ég beðin um að koma inn í herbergi... óvæntur afmælispakki! Hann Maggi minn vissi að Kata var að koma út, svo hann var búinn að kaupa afmælispakka og koma honum til Kötu svo ég fékk pakka á ammilisdaginn. Það sem að ég á góðann kærasta, átti sko ekki von á þessu.
Ég græddi aldeilis... fékk líka pakka frá Sóley og Diljá og Mílanó skvísunum mínum (Elísabetum Söndru og Sonju). Takk fyrir mig snúllur! Svo verð ég eiginlega að sýna ykkur hvað ég fékk flott afmæliskort hehe... Emeli og Olle kærastinn hennar útbjuggu fyrir mig kort þar sem Olle teiknaði af mér mynd (en hann er tattoo artist) og Emeli setti það upp í tölvu. Ég er ótrúlega fín í íslenskafána-kjól hehe... svo útbjó hún kaffirímiða á kaffihúsin í götunni hjá skólanum, einn kaffibolli á hverju kaffihúsi hahaha... Svo fékk ég líka voða sætt kort frá Michelu vinkonu minni en hún gerði líka mynd af mér.

Um kvöldið fórum við svo 11 saman út að borða á Seven og svo var farið heim í köku! Nathalie dúlla hafði bakað fyrir mig afmælisköku, ekkert smá girnileg og góð nammm...
Við vorum öll afvelta og langaði bara upp í rúm að sofa þegar nokkrar skvísur í bekknum mínum vildu endilega að við hittum þær í Navigli svo ég, Elísabet, Sandra, Kata, Sóley, Diljá og Sonja skelltum okkur í næsta tram til Navigli. Þegar við komum voru mikil fagnaðarlæti og mér var tilkynnt að ég hefði náð prófinu! Vá þvílíkur léttir... við skáluðum og fórum svo heim.
Daginn eftir var sko partý!
Mikið fjör og mikið gaman... klukkan tólf var farið út á metróstöð þar sem við náðum síðustu lestinni og var ferðinni heitið á einn stærsta skemmtistaðinn í borginni, Karma. Risastór, fullt af dansgólfi inni sem úti og var dansað framm undir morgun.

Í morgun var svo ítölskupróf... eða já... við áttum að halda smá fyrirlestur á ítölsku og allir bekkirnir eru saman í þessum kúrs eða vel yfir 60 manns. Þetta hófst og þá eru bara 2 próf eftir og eitt á morgun!
Ætla að fara læra hehe...
Ciao!
Smá síðan síðast hehe...
Eurovisin var svaka vel heppnað og ég tala nú ekki um þar sem við enduðum í öðru sæti. Við héldum partý hjá okkur og tróðum inn í íbúðina rúmlega tuttugu manns og allir að glápa á einn tölvuskjá hahaha.... þegar kom svo að kosningunni var haldið á kaffihúsið á móti skólanum sem var stappað af fólki og keppninni var varpað upp á skjáinn inni á kaffihúsinu.
Svo erum við búnar að vera kafna úr hita síðan. Hægt og rólega fór hitinn úr 20 gráðum í...
En ég get ekki sagt að maður hafi fengið mikinn lit þar sem það er næstum of heitt til að liggja í sólbaði og engin sundlaug á svæðinu... og við erum sko búnar að leita.
Þá er það skólinn... lokaverkefni og próf í fullum gangi og nú eru bara 4 próf eftir þannig að þetta er allt að klárast og það styttist í að ég komi heim!!
Á föstudaginn sl. var okkur boðið í ísraelskt sumarfagnaðar partý hjá Döfnu bekkjarsystur minni. Við vorum öll klædd í hvítt með blóm í hárinu, sumarleg og sæt hehe. Dafna dúlla var aldeilis búin að hafa fyrir þessu, glæsilegt hlaðborð, desert og allur pakkinn.
Daginn eftir fórum við Sandra og Sonja á Calefornia Bakery, en Elísabet var í Lúx. Lítið og krúttulegt kaffihús, ótrúlega gott og mjög vinsælt en síðast þegar ég ætlaði að fara þangað var röð langa leið út og ég gafst upp, en núna komumst við inn! Við fengum okkur pönnukökur með jarðaberjum, ný-kreistann appelsínusafa og ótrúlega gott kaffi... nammm... Um kvöldið fórum við Sandra svo á tjúttið með Sóley og Láru vinkonu hennar úr Bocconi.
Í gær var planið að fara út úr bænum en það var rigning á veðurkortunum svo ferðinni var freistað og í dag fórum við í leit að sundlaug... vel heppnuð ferð og sundlaugin er fundin!!! Rétt utan við flugvöllinn Linate er vatn og þar við hliðiná er sundlaug. Kostar reyndar slatta í laugina miðað við hvað hún er lítil og það er skylda að vera með sundhettu og það rauða hahaha... þannig að við láum bara við vatnið og fórum á hjólabát í staðinn. Frábær dagur í frábæru veðri og endaði í grilli á einnota grilli í garðinum.

